Nýjast á Local Suðurnes

Mögulegt að fella ríkisstjórnina vegna HSS

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar í Suðurkjördæmi, segir þá þingmenn kjördæmisins sem búa á Suðurnesjum geta fellt ríkisstjórnina verði ekkert að gert í málefnum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Oddný sat aðalfund Öldungaráðs Suðurnesja um helgina, en þar var fjárskortur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja helsta mál á dagskrá. Fram kom á fundinum að ekki sé tekið tillit til mikillar fjölgunar íbúa eða samsetningu þeirra í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Það segir Oddný vera óásættanlegt í pistli á Facebook-síðu sinni.

Þar segir hún einnig að 10 þingmenn Suðurkjördæmis búi á Suðurnesjum og að þar af séu sex stjórnarþingmenn.

“Þau geta fellt ríkisstjórnina ef þeim sýnist svo. Þau verða að leggjast á árarnar með okkur hinum, sveitarstjórnarfólki og íbúum.” Segir Oddný, en pistil hennar má sjá hér fyrir neðan.

Þá hefur töluverð ólga verið á meðal starfsfólks HSS vegna stjórnunarhátta nýs forstjóra stofnunarinnar, sem varð til þess að nokkur fjöldi starfsfólks skrifaði undir vantraustyfirlýsingu á störf forstjórans sem send var heilbrigðisráðuneytinu.