Nýjast á Local Suðurnes

Nýir aðilar taka við almenningssamgöngum í Reykjanesbæ

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Tvö tilboð bárust í rekstur almenningssamgangna í Reykjanesbæ. Bæjarráð sveitarfélagsins hefur ákveðið að taka tilboði GTS sem var lægra. Fulltrúi Sjálfsstæðisflokksins greiddi atkvæði gegn meirihlutanum og vildi hafna báðum tilboðum.

Almenningssamgöngur í Reykjanesbæ hafa undanfarin ár verið í höndum Suðurnesjafyrirtækisins Bus4u.