Nýjast á Local Suðurnes

Angela Rodriguez þjálfar Grindavík í vetur – Sex leikmenn skrifuðu undir samninga

Á dögunum tilkynnti Körfuknattleiksdeild UMFG um ráðningu þjálfara meistaraflokks kvenna fyrir komandi vetur en Angela Rodriguez mun bæði þjálfa liðið og leika með því. Angela lék með liðinu eftir áramót á liðnu tímabili en náði aðeins að leika 4 leiki vegna ótrúlegra tafa á veitingu atvinnuleyfis. Þetta kemur fram á vefnum Grindavík.is.

Þá skrifuðu 6 leikmenn undir samninga á dögunum þess efnis að spila með liðinu á komandi tímabili en það eru þær Embla Kristínardóttir, Sigrún Elfa Ágústsdóttir, Andra Björk Gunnarsdóttir, Elísabet María Magnúsdóttir, Ólöf Rún Óladóttir og Arna Sif Elíasdóttir. Þær stöllur eru á myndinni hér að ofan, að Örnu undanskilinni, en hún átti ekki heimangengt þegar myndin var tekin.