Nýjast á Local Suðurnes

Þriggja bíla árekstur á gatnamótum við Reykjanesbraut

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ökumenn þriggja bifreiða voru í fyrradag fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að bifreiðirnar höfðu lent í árekstri á Arnarvöllum. Óhappið varð með þeim hætti að einn ökumannanna var í kyrrstæðri bifreið sinni að bíða eftir að komast út á Reykjanesbraut. Ökumaður annarrar bifreiðar beið þess sama fyrir aftan hann. Þá bar að þriðju bifreiðina sem ekið var aftan á síðarnefndu bifreiðina sem við það skall aftan á þá fremstu.

Allir ökumennirnir kenndu eymsla. Bifreiðirnar skemmdust allar og varð að fjarlægja eina þeirra með dráttarbifreið af vettvangi.