Nýjast á Local Suðurnes

Tónleikar og kjötsúpa færð í skjól

Á föstudag verður snúið á veðurguðina og breyting gerð á dagskrá Ljósanætur. Kjötsúpan frá Skólamat verður færð við gamla slippinn við smábátahöfnina og tónleikar færðir inni í slippinn. Þar verður boðið upp á sannkallaða skemmuupplifun eins og ýmsir þekkja t.d. frá tónlistarhátíðunum Aldrei fór ég suður og Bræðslunni, segir í tilkynningu.

Dagskráin verður ekki af verri endanum og meðal þeirra sem koma fram eru Sigga og Grétar í Stjórninni og sjálf diskódívan Páll Óskar auk flottu heimabandanna Midnight Librarian, Demo og Sissu sigurvegara úr söngkeppni framhaldsskólanna ásamt fleiri atriðum. Komið og njótið rjúkandi kjötsúpu og skemmtilegrar stemningar í gamla slippnum í Grófinni.

Kjöstúpa kl. 18-20, dagskrá á sviði 18-21:30