Nýjast á Local Suðurnes

Fjórir ökumenn undir áhrifum fíkniefna

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af fjórum ökumönnum sem reyndust vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu. Við öryggisleit fundust meint fíkniefni í úlpuvasa eins þeirra. Annar var með tvo poka af kannabisefnum í bifreið sinni.

Þá voru átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur.  Sá sem hraðast ók mældist á 133 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.