Nýjast á Local Suðurnes

Ýmsar kynjaverur á þrettándagleði í Reykjanesbæ

Árleg þrettándagleði verður haldin í Reykjanesbæ sunnudaginn 6. janúar næstkomandi. Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Júdódeild UMFN, Björgunarsveitin Suðurnes og Jólahljómsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni ásamt púkum, álfum, Grýlu, jólasveinum og ýmsum öðrum kynjaverum.

Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla

Áður en dagskrá hefst, frá kl. 15:30 -17:00, verður boðið upp á skemmtilega luktarsmiðju í Myllubakkaskóla. Fólk tekur með sér krukku að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði á Hafnargötu. Allt efni og ljós (fyrir utan krukkuna sjálfa) fæst á staðnum. Verð fyrir efni er kr. 300 og greiðist með peningum á staðnum. Gengið er inn um inngang við Suðurtún. Allir velkomnir. 

Blysför að hátíðarsvæði og börn í búningum

Klukkan 17:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar og hirðar þeirra frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8. Foreldrar eru hvattir til að leyfa börnunum að taka virkan þátt í gleðinni með því að klæða sig upp í ýmis gervi, jafnvel púkagervi og auðvitað að taka nýju luktina meðferðis í blysförina. Á hátíðarsvæðinu verður það sjálf Grýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.

Brenna, kakó og piparkökur

Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur til að ylja sér.

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes

Jólin verða svo kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeim er einum lagið.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Júdódeild UMFN, Björgunarsveitin Suðurnes og Jólahljómsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.

Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.