Bryndís Jóna ráðin skólastjóri Heiðarskóla
![heidarskoli](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/01/heidarskoli.jpg?resize=620%2C264)
Bryndís Jóna Magnúsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Heiðarskóla. Bryndís er starfinu kunnug, en hún hefur sinnt starfi skólastjóra í tímabundinni ráðningu frá 1. apríl 2019.
Bryndís Jóna lauk kennaranámi með B.Ed. gráðu árið 2006 frá Kennaraháskóla Íslands og stundar nú meistaranám við Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun menntastofnana.
Hún hefur starfað við Heiðarskóla frá árinu 2009 við góðan orðstír og verið í stjórnunarteymi skólans frá árinu 2013. Fyrst sem deildarstjóri í þrjú ár og síðan aðstoðarskólastjóri frá árinu 2016.