Vímaður unglingur gómaður á stolnum bíl
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum stöðvað sex ökumenn sem reyndust aka án ökuréttinda. Einn þeirra var jafnframt grunaður um fíkniefnaakstur. Sá ók sviptur ökuréttindum og var á bifreið sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi. Hann hafði ekki náð 18 ára aldri og var forráðamönnum því gert viðvart og tilkynning send til barnaverndarnefndar.
Nokkrir ökumenn til viðbótar voru teknir úr umferð vegna vímuefnaaksturs og fáeinir kærðir fyrir hraðakstur.