Nýjast á Local Suðurnes

Rekstur HS Orku gekk vel á síðasta ári

Heild­ar­tekj­ur HS Orku á síðasta árs­i námu um 14,6 millj­örðum króna og juk­ust þær um 10% á milli ára. Munaði þar mestu um aukna raf­orku­sölu á al­menn­um markaði, til stór­not­enda og í heild­sölu. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins, en í til­kynn­ingu fé­lags­ins seg­ir að fjár­hags­staða þess sé sterk og nam eigið fé nemi 31 millj­arði í árs­lok, eig­in­fjár­hlut­fall er 39%.

Þá seg­ir að HS Orka hafi end­ur­fjármagnað skuld­ir fé­lags­ins á ár­inu 2024 og tryggt lánalín­ur fyr­ir áfram­hald­andi upp­bygg­ingu hér á landi. Fjár­mögn­un­in nær til yf­ir­stand­andi stækk­un­ar og end­ur­bóta orku­vers­ins í Svartsengi. Þá seg­ir að láns­fjár­hæðin nemi að jafn­v­irði um 290 millj­óna banda­ríkja­dala eða um 40 millj­örðum ís­lenskra króna.

Tómas Már Sig­urðsson, for­stjóri HS Orku, seg­ir í til­kynn­ingunni að hann sé ánægður með niður­stöðuna. „HS Orka sýndi styrk sinn svo um mun­ar á ár­inu. Styrk­ur­inn spegl­ast í því að tek­ist hef­ur að halda dag­leg­um rekstri orku­vera fyr­ir­tæk­is­ins stöðugum þrátt fyr­ir aðsteðjandi nátt­úru­vá en elds­um­brot og jarðhrær­ing­ar höfðu óveru­leg áhrif á orku­vinnslu og fram­kvæmd­ir HS Orku á ár­inu. Lokið var við end­ur­fjármögn­un fyr­ir­tæk­is­ins á inn­lend­um og er­lend­um fjár­mála­mörkuðum við krefj­andi aðstæður og víðtæk trygg­inga­vernd fé­lags­ins var end­ur­nýjuð.”