Útboð á byggingarétti

Reykjanesbær hefur auglýsit útboð á byggingarétti á raðhúsalóðum við Álfadal 1-7 og 18-24 og fjölbýlishúsalóðum við Trölladal 12-14 og Dvergadal 2-10.
Lóðirnar eru í suðurhluta 3. áfanga Dalshverfis sem staðsett er í austast í bænum.
Opnað var fyrir útboðið þann 16. apríl síðastliðinm. Tilboð sem berast til og með 4. maí verða tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 9. maí 2025.
Í útboðsgögnum er sérstaklega tekið fram að lágmarksboð í byggingarétt sé 35.000 kr/m2. Þá er tekið fram að gatnagerðargjöld greiðist samkvæmt gjaldskrá.