Nýjast á Local Suðurnes

Tvö ný smit og tæplega 300 í sóttkví

Einstaklingum sem smitaðir eru af kórónuveirunni fjölgaði um tvo undanfarinn sólarhring á Suðurnesjum samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is. Þannig eru nú 29 smit staðfest á Suðurnesjum. 285 einstaklingar sæta sóttkví og er fjölgunin þar um 20 manns.

Enn er forgangsraðað í sýnatökur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, eins og annarsstaðar á landinu, eftir tilmælum Landlæknis. Ekki er hægt að taka sýni hjá öllum sem uppfylla þau skilyrði sem til þarf og eru sýnatökur háðar mati læknis.

Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook, en þar eru birtar nýjustu fréttir frá stofnuninni.