sudurnes.net
Tvö ný smit og tæplega 300 í sóttkví - Local Sudurnes
Einstaklingum sem smitaðir eru af kórónuveirunni fjölgaði um tvo undanfarinn sólarhring á Suðurnesjum samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is. Þannig eru nú 29 smit staðfest á Suðurnesjum. 285 einstaklingar sæta sóttkví og er fjölgunin þar um 20 manns. Enn er forgangsraðað í sýnatökur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, eins og annarsstaðar á landinu, eftir tilmælum Landlæknis. Ekki er hægt að taka sýni hjá öllum sem uppfylla þau skilyrði sem til þarf og eru sýnatökur háðar mati læknis. Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook, en þar eru birtar nýjustu fréttir frá stofnuninni. Meira frá SuðurnesjumÁ fimmtahundrað Suðurnesjamenn komnir í sóttkvíHafa tekið sýni úr um 300 einstaklingum – 34 smitaðir á SuðurnesjumSmituðum fjölgar lítillega á Suðurnesjum – Forgangsraðað í sýnatökur450 einstaklingar sæta sóttkví á SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkHöfða til erlendra verkamanna í stjórnarkjöriÓkeypis lyf fyrir ungt fólk með krabbameinHættu eftir rúma tvo áratugi í stjórn KeflavíkurFjölskylduskemmtun Björgunarsveitarinnar Suðurnes í kvöldBreytingar á reglugerð munu kosta Sandgerðishöfn milljónir króna árlega