Erlend fyrirtæki vilja í Græna iðngarðinn

Fyrirtæki frá Bandaríkjunum, Japan og Noregi og Kóreu auk innlendra fyrirtækja hafa skrifað undir leigusamning eða viljayfirlýsingu um leigu á aðstöðu í Græna iðngarðinum í Helguvík en byggingar garðsins eru um 30.000 fermetrar að flatarmáli.
Kóreska líftæknifyrirtækið CellMeat er nýjasta viðbótin í hópnum, en fyrirtækið hefur í hyggju að setja upp sína fyrstu framleiðslu utan Kóreu á vistkjöti í Helguvík, samkvæmt umfjöllun Viðskiptablaðsins sem fjallar um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum.
CellMeat hefur náð eftirtektarverðum árangri á sviði framleiðslu á frumuræktuðu rækjukjöti og kavíar úr sjávarafurðum, segir í umfjöllun Viðskiptablaðsins.