Nýjast á Local Suðurnes

Fjórtán skipverjar smitaðir

Allir skipverjar af línuskipinu Valdimar GK í eigu Þorbjarnar hf. í Grindavík, fjórtán talsins, hafa greinst með kórónuveirusmit. Skipið lagði að bryggju í Njarðvík í morgun eftir rúmlega sólarhrings siglingu frá Hornafirði.

Framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. staðfesti þetta við héraðsfréttamiðilinn Víkurfréttir, sem greindi fyrst frá. Framkvæmdastjórinn sagði að ekki væri vitað hvernig skipverjar smituðust. Smitrakning ætti eftir að skera úr um það.