Nýjast á Local Suðurnes

Ný sjúkrabifreið til Suðurnesja

Brunavarnir Suðurnesja hafa fengið afhenta nýja sjúkrabifreið, en um þessar mundir er unnið að því að endurnýja sjúkrabílaflota landsins og er BS á meðal þeirra fyrstu sem fá nýja bifreið afhenta.

Litir hennar eru ansi frábrugðnir því sem fólk þekkir almennt, segir á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum, sem óskar félögum sínum hinum megin við götuna til hamingju með nýju bifreiðina.

Lögregla lætur smá fróðleik um nýju sjúkrabílana fylgja í færslunni, en þeir eru líkt og nýju lögreglubílarnir með því sem kallast Battenburg merkingar. Merkingarnar gera þá sýnilegri og auðþekkjanlegri en ella.
Viðbragðsaðilar hafa sýna auðkennisliti í Battenburg kerfinu. Lögregla hefur bláan á gulu slökkvilið hefur rauðan á gulu og sjúkrabílar hafa grænan á gulu svo eitthvað sé nefnt.