Nýjast á Local Suðurnes

Kaupa þjónustu af Reykjanesbæ næstu þrjú árin

Reykjanesbær og Sandgerðisbær skrifuðu á dögunum undir framlengingu á samningi vegna aðkeyptrar þjónustu af skólaþjónustu fræðslusviðs Reykjanesbæjar fyrir grunnskólann í Sandgerði.

Samningurinn, sem er til þriggja ára, nær til skólaþjónustu við grunnskólann, skimunar og ráðgjafar um íhlutun í lestrar- og stærðfræðinámi. Einnig kennslufræðilegrar ráðgjafar vegna tvítyngdra nemenda, úrræða og fræðslu, t.d. sértæk uppeldisnámskeið. Auk þess nær samningurinn til endurmenntunar fyrir starfsfólk , rekstrarráðgjöf við skólann og eftirlit með gæðum skólastarfs.

Í tilkynningu frá Reykjanesbæ kemur fram að Skólaþjónusta fræðslusviðs Reykjanesbæjar hafi það að markmiði að efla skólana á þjónustusvæði sínu sem faglegar stofnanir til að geta leyst þau viðfangsefni sem upp koma í daglegu skólastarfi. Hjá skólaþjónustu starfa kennsluráðgjafar, sálfræðingar og talmeinafræðingar og mótast þjónustan af heildarsýn á aðstæður og hagsmuni nemenda óháð hver það er sem veitir þjónustuna. Þannig skal velferð nemenda ávallt höfð að leiðarljósi.