Nýjast á Local Suðurnes

Unglingar duttu – Annar fótbrotnaði og hinn rófubeinsbrotnaði

Unglingur sem datt aftur fyrir sig á reiðhjólastand í Grindavík í vikunni var talinn hafa rófubeinsbrotnað við fallið. Hann hafði tekið einhver skref aftur fyrir sig með þeim afleiðingum að hann féll á grindina. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Annar unglingur sem datt í hálku í Njarðvík  var talinn hafa fótbrotnað við fallið. Hann var einnig fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að meiðslum hans.