Richard Brian varð Íslandsmeistari og Sigríður setti Íslandsmet
![sigridur Gislad skotf](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/04/sigridur-Gislad-skotf.jpg?resize=620%2C264)
Sigríður E. Gísladóttir setti Íslandsmet í loftriffli í unglingaflokki Kvenna með 283.9 stig í 40 skotum
Richard Brian Busching varð Íslandsmeistari í loftriffli í unglingaflokki Karla með 427.3 stig í 60 skotum.
Theodór Kjartandsson var í 2. sæti í loftriffli í Karlaflokki.
Íslandsmeistarar urðu sem hér segir:
Loftskammbyssa karla Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur,í kvennaflokki Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur, í unglingaflokki Dagný Rut Sævarsdóttir úr Skotíþróttafélagi Kópavogs.
Í Loftriffli karla Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur, í kvennaflokki Íris Eva Einarsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur, í unglingaflokki kvenna Sigríður E. Gísladóttir úr Skotdeild Keflavíku á nýju Íslandsmeti og í unglingaflokki karla Richard B. Busching úr Skotdeild Keflavíkur.
Í liðakeppninni varð Skotíþróttafélag Kópavogs Íslandsmeistari í loftriffli karla, loftskammbyssu karla og kvenna en Skotfélag Reykjavíkur í loftriffli kvenna.