Nýjast á Local Suðurnes

Fær 230 þúsund króna sekt fyrir hraðakstur

Á annan tug ökumanna hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 152 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Ökumannsins bíður 230 þúsund króna sekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.