Nýjast á Local Suðurnes

Heimila vinnu við deiliskipulag nýs hverfis

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að heimila Grænubyggð ehf. að hefjast handa við vinnu deiliskipulags á fyrirhuguðu íbúðasvæði samkvæmt samkomulagi við sveitarfélagið.

Skipulagsefnd sveitarfélagsins ítrekar að hámarks fjöldi eininga á svæðinu séu 779 sem Grænabyggð ehf. hefur til umráða. Áréttar nefndin jafnframt að áður en sveitarfélagið veitir heimild til framkvæmda og sölu á byggingarrétti þá skal fyrri áfangi vera langt kominn bæði hvað varðar framkvæmdir og úthlutun lóða eins og greinir í samkomulagi fyrirtækisins við sveitarfélagið.