Segja mikla annmarka hafa verið á útboðsgögnum vegna strætó

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Reykjanesbæjar segja annmarka hafa verið á útboðsgögnum vegna almenningssamgangna í sveitarfélaginu, en verkið var boðið út á dögunum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks segja að meðal annars hafi fjöldi bíla sem þarf til akstursins verið rangur, fjöldi kílómetra rangur og raunkeyrsla. Fulltrúar meirihluta segja hins vegar að farið hafi verið að lögum og reglum útboðsskilmála.
Bókanir beggja aðila má sjá í heild hér fyrir neðan.
Bókun Sjálfstæðisflokks:
„Á fundi bæjarráðs þann 30. apríl síðastliðinn hafnaði Sjálfstæðisflokkurinn báðum tilboðum sem bárust í almenningssamgöngur í Reykjanesbæ.
Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar þá skoðun sína að skynsamlegt hefði verið að hafna báðum tilboðum í almenningssamgöngur í Reykjanesbæ og gerir hér grein fyrir þeirri skoðun sinni.
Bæði tilboðin voru töluvert yfir kostnaðaráætlun og kemur mjög skýrt fram í útboðsgögnum að kaupanda sé heimilt að hafna öllum tilboðum sem eru yfir kostnaðaráætlun, standi málefnalegar ástæður til þess hafna, og/eða hafi almennar forsendur fyrir útboði brostið.
Verulegir annmarkar voru á útboðsgögnunum og miklar breytingar gerðar í ferlinu sem hafa talsverð áhrif á umfang þjónustunnar sem boðin var út. Í upphaflegum gögnum útboðsins og að hluta í endanlegum gögnum var tilgreindur fjöldi bíla sem þarf til akstursins rangur, fjöldi kílómetra rangur, og raunkeyrsla. Munurinn getur numið tugum milljóna króna á ári sem getur skapað skaðabótaskyldu fyrir sveitarfélagið.
Almenningssamgöngukerfið hefur verið rekið í óbreyttri mynd í um níu ár þrátt fyrir að innstigum hafi fjölgað gríðarlega og umferð innan sveitarfélagsins aukist til muna. Í ljósi þess að tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun og framangreindra vankanta á útboðsgögnum, hefði átt að hafna báðum tilboðum, og nýta tækifærið til að endurskoða kerfið, gera það betra og skilvirkara, spara tugi milljóna króna eða fá mun meira út úr samgöngukerfinu. Þannig mætti einnig koma í veg fyrir vandræði og óþægindi sem samþykkt tilboða byggðum á ófullnægjandi gögnum, getur haft í för með sér.“
Bókun meirihluta bæjarstjórnar:
„Varðandi útboð á almenningssamgöngum áréttum við að báðir aðilar fengu aðgang að sömu forsendum og upplýsingum. Reykjanesbær vann útboðið í samráði við fyrirtækið Consensa sem er mjög reynslumikið í útboðsmálum um allt land.
Bara til að taka það skýrt fram hér að bæjarstjórn Reykjanesbæjar fer eftir lögum og reglum útboðsskilmála í svo stórum útboðum líkt og ávallt. Hlutverk bæjarstjórnar er að taka hagstæðustu samninga fyrir Reykjanesbæ og það var gert með þessum samningi.
Þetta var rökrétt ákvörðun af bæjarráði og vonandi bæjarstjórn að taka þessu lægra tilboði og vonar meirihluti bæjarstjórnar að samstarf okkar við nýjan rekstraraðila verði farsælt og gott og óskar þessu fyrirtæki velfarnaðar í okkar sveitarfélagi.“