Fundu fyrir jarðskjálfta norður af Grindavík í Borgarnesi
![grindavik](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/grindavik.jpg?resize=620%2C264)
Jarðskjálfti um 4,1 að stærð mældist norður af Grindavík um klukkan þrjú í nótt, aðfaranótt sunnudags. Skjálftinn fannst vel í Grindavík en auk þess hafa tilkynningar borist víðs vegar af Reykjanesi, höfuðborgarsvæðinu og frá Borgarnesi. Engar tilkynningar hafa borist um tjón.
Skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesinu frá því í lok árs 2019 ásamt landrisi sem rakið er til kvikusöfnunar. Nokkuð rólegt hefur verið yfir svæðinu síðustu vikur.