Norðurál Helguvík tekið til gjaldþrotaskipta

Bú Norðuráls Helguvíkur ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness síðastliðinn fimmtudag, en félagið var í eigu Norðuráls.
Fyrirtækið átti að sjá um rekstur álvers í Helguvík en ekkert hefur orðið af honum. Frá þessu er greint á vef Morgunblaðsins, mbl.is.