Nýjast á Local Suðurnes

Ólögráða á of miklum hraða

Ökumaður sem var á ferðinni eftir Reykjanesbraut í gær mældist á 146 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann reyndist ekki vera orðinn lögráða og tilkynnti lögreglan á Suðurnesjum því málið til barnaverndarnefndar.

Annar ökumaður, ungur að aldri, sem lögregla hafði afskipti af reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi. Mál hans var einnig tilkynnt til barnaverndarnefndar.

Þriðji ökumaðurinn var svo handtekinn vegna gruns um að hann væri ölvaður við aksturinn.