Nýjast á Local Suðurnes

Drónabann við Grindavík framlengt

Áður útgefið flug- og drónabann yfir Grindavík hefur verið framlengt til 15. desember. Fjölmiðlum verða veittar undanþágur með skilyrðum, segir í tilkynningu.

Að beiðni samhæfingarstöðvar Almannavarna, fyrir hönd Lögreglustjórans á Suðurnesjum, hefur áður auglýst flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember nk. Lokunin nær til sama svæðis og verið hefur, sem markast af eftirfarandi hnitum:

635621N0222218W
635440N0221323W
634641N0222232W
634902N0223533W

Gegn skráningu og tilkynningaskyldu fá fjölmiðlar undanþágu til drónaflugs undir 60 m yfir sjávarmáli. Þó verður ekki heimilt að fljúga drónum á svæðinu milli kl. 18:00 og 07:00. Sótt er um undanþágu á netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644 á dagvinnutíma, segir í tilkynningunni.