Nýjast á Local Suðurnes

Flugstöð Leifs Eiríkssonar rýmd og vopnaleit framkvæmd á öllum farþegum

Flugstöð Leifs Eiríkssonar var rýmd fyrir skömmu og þurftu allir þeir farþegar sem voru þar að fara í gegnum vopnaleit. Um tvö til þrjú þúsund manns eru í flugstöðinni og er ekki vitað hvað þessi vopnaleit mun taka langan tíma.

Þetta kemur fram á vef Vísis.is, en þar segir að ástæðan fyrir vopnaleitinni er sú að fyrr í dag lenti á Keflavíkurflugvelli flugvél sem var að koma frá Nuuk á Grænlandi. Farþegar vélarinnar höfðu farið í gegnum vopnaleit á flugvellinum í Nuuk en sú vopnaleit stenst ekki alþjóðlegar kröfur og því stóð til að gera vopnaleit á farþegunum við komuna inn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Það urðu hins vegar mistök sem urðu þess valdandi að flugvélinni var ekið að röngu landgönguhliði og fóru farþegarnir því inn í flugstöðina án þess að fara í gengum vopnaleit. Þegar mistökin lágu fyrir var flugstöðin rýmd og allir sem þar voru boðaðir í vopnaleit.