Nýjast á Local Suðurnes

Ekki viðbúnaður vegna vélar frá Verona

Enginn sérstakur viðbúnaður verður á Keflavíkurflugvelli í dag þegar flugvél sem kemur frá Verona á Ítalíu lendir á vellinum. Farþegar vélarinnar voru í skipulagðri hópferð á skíðasvæði nálægt þeim svæðum sem Covid 19 veiran er sem útbreiddust.

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, staðfesti þetta í samtali við blaðamann Suðurnes.net. Guðjón sagði þetta gert að höfðu samráði við sóttvarnalækni.

Þá segir Guðjón að eftir að óvissustigi var lýst yfir hafi verið komið upp stöndum með sótthreinsispritti í flugstöðinni og sett upp veggspjöld með leiðbeiningum til ferðamanna sem koma frá skilgreindum áhættusvæðum. Þar er brýnt fyrir þeim að viðhafa hreinlæti og hringja í síma 1700 ef grunur leikur á smiti.