Nýjast á Local Suðurnes

Með kannabisrafrettu á 135 km hraða

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 135 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á Reykjanesbraut um helgina viðurkenndi að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, en þar segir einnig að rafretta með kannabisvökva í hafi fundist við leit í bifreiðinni. Annar ökumaður sem tekinn var úr umferð sama kvöld viðurkenndi fíkniefnaakstur.

Afskipti hafa verið höfð af allmörgum ökumönnum á undanförnum dögum sem gerðust brotlegir í umferðinni. Um var að ræða akstur á ótryggðum eða óskoðuðum bifreiðum, grun um vímuefnaakstur og svo óku nokkrir ökumenn án réttinda, segir jafnframt í tilkynningunni.