Líkfundur í berginu við smábátahöfnina
![logreglustod keflavik](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglustod-keflavik.jpg?resize=620%2C264)
Lík fannst í berginu við smábátahöfnina í Gróf í Keflavík um miðjan dag í dag.
Lögreglan er með málið til rannsóknar, en mikill viðbúnaður var á svæðinu um klukkan eitt, þar sem allt tiltækt slökkvilið var kallað út, ásamt sjúkrabílum, lögreglu og björgunarsveitum.
Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Suðurnesjum staðfestir líkfundinn við mbl.is. Málið er rannsakað sem mannslát en ekki fást frekari upplýsingar um rannsóknina.