Nýjast á Local Suðurnes

Hönnunarsamningur vegna grunnskóla undirritaður – Bráðabirgðahúsnæði klárt í haust

Á föstudag undirrituðu fulltrúar Reykjanesbæjar og arkitektastofunnar Arkis hönnunarsamning á nýjum grunnskóla í Reykjanesbæ. Áætlað er að Arkis skili aðaluppdrætti í ágúst næstkomandi og að alútboðsgögn í 1. áfanga verði klár í lok september næstkomandi.  Framkvæmdir við bráðabirgðaskólahúsnæði eru þegar hafnar og verður sú eining tilbúin í ágúst.

Reykjanesbær hyggst reisa rúmlega 10.000 m² skóla í Dalshverfi í Reykjanesbæ byggðan á samkeppnistillögu Arkís arkitekta frá febrúar 2017. Skólinn mun hýsa leikskóla, grunnskóla, íþróttahús, sundlaug, tónlistarskóla og bókasafn ásamt tengdum rýmum. Tillagan var valin af byggingarnefnd skólans.