sudurnes.net
Hönnunarsamningur vegna grunnskóla undirritaður - Bráðabirgðahúsnæði klárt í haust - Local Sudurnes
Á föstudag undirrituðu fulltrúar Reykjanesbæjar og arkitektastofunnar Arkis hönnunarsamning á nýjum grunnskóla í Reykjanesbæ. Áætlað er að Arkis skili aðaluppdrætti í ágúst næstkomandi og að alútboðsgögn í 1. áfanga verði klár í lok september næstkomandi. Framkvæmdir við bráðabirgðaskólahúsnæði eru þegar hafnar og verður sú eining tilbúin í ágúst. Reykjanesbær hyggst reisa rúmlega 10.000 m² skóla í Dalshverfi í Reykjanesbæ byggðan á samkeppnistillögu Arkís arkitekta frá febrúar 2017. Skólinn mun hýsa leikskóla, grunnskóla, íþróttahús, sundlaug, tónlistarskóla og bókasafn ásamt tengdum rýmum. Tillagan var valin af byggingarnefnd skólans. Meira frá SuðurnesjumNýr stjóri Kadeco hnýtir lausa endaGuðbrandur Einarsson verður forseti bæjarstjórnar ReykjanesbæjarVilja byggja útsýnispall á vatnstankiÓlafur hættir sem lögreglustjóri – Grímur tekur viðÁfram frítt í söfninÁfram frítt í söfninIberia bætist í hópinn á Keflavíkurflugvelli – Ódýrt flug til MadrídStal kortaupplýsingum og ferðaðist vítt og breitt um heiminnFramkvæmdir við Krýsuvíkurgatnamót ganga vel – Enn má búast við töfum á umferðTólf vilja forstjórastól