Nýjast á Local Suðurnes

Sigurður hættir með Keflavík

Sigurður Ragnar Eyjólfsson mun hætta sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Keflavík að loknu yfirstandandi tímabili. Um sameiginlega ákvörðun er að ræða samkvæmt tilkynningu frá félaginu sem sjá má hér fyrir neðan.

Sameiginleg yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Keflavíkur og Sigurði Ragnari Eyjólfssyni þjálfara mfl. karla

Knattspyrnudeild Keflavíkur og Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari meistaraflokks karla í Bestu deildinni hafa ákveðið að ljúka samstarfi sínu að loknu þessu keppnistímabili í október næstkomandi.
Keppnistímabilið í ár er fjórða keppnistímabil Sigurðar hjá félaginu og á hans fyrsta ári vann Keflavík Lengjudeildina og hefur síðan þá leikið í Bestu deildinni. Í fyrra endaði liðið í 7.sæti sem er besti árangur Keflavíkur síðastliðin 12 ár. Það er enn óljóst í hvaða sæti liðið lendir nú í ár en baráttan í Bestu deildinni er hörð og ennþá í gangi. Báðir aðilar hafa hins vegar komist að samkomulagi um að best sé að leiðir skilji að loknu móti í október, ákvörðunin er tekin með vinsemd og virðingu beggja aðila fyrir hvorum öðrum.
Áfram Keflavík!

Knattspyrnudeild Kefavíkur og Sigurður Ragnar Eyjólfsson.