Nýjast á Local Suðurnes

Ekki í viðræðum við ríkið um sölu á tvö hundruð íbúðum á Ásbrú

Leigufélagið Heimstaden á ekki í viðræðum við ríkið um sölu á hátt í tvö hundruð íbúðum á Ásbrú, en umræður um slíkt hafa verið í gangi í Facebookhópunum Íbuar á Ásbrú og Reykjanesbær – tökum samtalið í morgun.

Umræðunum hefur fylgt skjal sem á að sýna einhverskonar tilfærslu á eignum Heimstaden yfir til ríkisins. Blaðamaður sló á þráðinn til Egils Lúðvíkssonar, forstjóra Heimstaden, til að forvitnast um málið og sagði Egill að engar viðræður væru í gangi við ríkið um kaup á íbúðum fyrirtækisins á Ásbrú.

skjáskot af skjali sem er í dreifingu á Facebook