Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær sér um förgun jólatrjáa

Eins og undanfarin ár býður Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar upp á hirðingu jólatrjáa frá íbúum og kemur til förgunar.  Íbúar þurfa að koma trénu fyrir utanhúss á sýnilegum stað vilji þeir nýta þjónustuna. Hringja þarf í síma 420 3200 og óska eftir þjónustunni, sem verður á boðstólnum dagana 8. – 12. janúar.

Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar er opin  kl. 07:00 – 16:00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 07:00 – 12:30 föstudaga.