Lögregla æfir forgangsakstur
Vegfarendur á Suðurnesjum og víðar á suðvestur horninu gætu átt von á að verða varir við lögreglubifreiðar á ferðinni í dag í forgangsakstri.
Um er að ræða námskeið í akstri með forgangi og biðjum við vegfarendur um að sýna þessu skilning, segir í tilkynningu frá lögreglu.