Nýjast á Local Suðurnes

Grindavík fór létt með Augnablik

Grindavíkurstúlkur voru ekkert að slaka á, þrátt fyrir að hafa þegar tryggt sér sigurinn í B-riðli 1.deildarinnar, þegar þær tóki á móti Augnabliki í 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Grindavík sigraði leikinn með þremur mörkum gegn engu.

Mörkin þrjú komu öll í síðari hálfleik, Marjani Hing-Glover skoraði fyrsta markið þegar þrjár mínútur voru liðnar af hálfleiknum, Linda Eshun bætti öðru marki við á 70. mínútu og Sashana Campbell innsiglaði góðan sigur átta mínútum síðar.