Nýjast á Local Suðurnes

Regína Fanný stjórnar fjármálum Reykjanesbæjar

Regína Fanný Guðmundsdóttir, löggiltur endurskoðandi og deildarstjóri reikningshalds hjá Reykjanesbæ, hefur verið ráðin fjármálastjóri Reykjanesbæjar.  Regnína hefur sinnt störfum fjármálastjóra í tímabundinni ráðningu frá því desember 2018 þegar fyrrverandi fjármálastjóri lét af störfum.  Áður starfaði hún meðal annars hjá BYR og fleiri fjármálastofnunum.

Regína hóf störf sem deildarstjóri reikningshalds hjá Reykjanesbæ í upphafi árs 2015 og hefur tekið virkan þátt í stjórnendateymi Reykjanesbæjar undanfarin misseri. Hún tekur við starfi fjármálastjóra 1. ágúst næstkomandi.