Nýjast á Local Suðurnes

Nota ætti hluta af söluverðmæti eigna á Ásbrú í að byggja upp þjónustu á svæðinu

Í bréfi sem Fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi Reykjanesbæ er farið fram á afstöðu sveitarfélagsins til sölu eigna á Ásbrúarsvæðinu, en sala eigna á svæðinu hefur verið í umsjá Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf.. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarstórnar þann 6. apríl og lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram bókun þar sem meðal annars kemur fram að í ljósi þess að Reykjanesbær hafi byggt upp grunnskóla og tvo leikskóla á svæðinu hljóti sveitarfélagið að gera þá kröfu að stórum hluta söluverðmætis eigna verið varið til að byggja upp nærþjónustuna á svæðinu.

Bókun Sjáfstæðismanna í heild sinni er hér fyrir neðan.

Við brotthvarf bandaríska varnarliðsins haustið 2006 stofnaði ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. og fól því að annast umsýslu fasteigna ríkisins á svæðinu og önnur verkefni sem tengjast framtíðarþróun þess.

Við höfum séð svæðið þróast mikið í kringum Keili, frumkvöðlasetrið og gagnaver svo eitthvað sé nefnt og nú er svo komið að mikið af íbúðahúsnæðinu er selt. Mikill áhugi er meðal fjárfesta og fyrirtækja í flugtengdum rekstri að nýta enn meira af því húsnæði sem eftir er. Ásbrú er óðum að festa sig í sessi sem eitt af stærri hverfum Reykjanesbæjar og er löngu tímabært að við lítum til þess hvernig við sem sveitarfélag munum þjónusta og þróa þetta hverfi til framtíðar.
Í bréfi Fjármála- og efnahagsráðuneytisins er farið fram á afstöðu Reykjanesbæjar til sölu eigna á Ásbrúarsvæðinu. Við Sjálfstæðismenn gerum þá kröfu til ríkisins að stórum hluta söluverðmætis þessara eigna verið varið til að byggja upp nærþjónustuna á svæðinu. Reykjanesbær hefur byggt upp grunnskóla og tvo leikskóla á þessu svæði með tilheyrandi kostnaði og taka verður tillit til þessa þegar fjármunum sem myndast í Þróunarfélaginu verður úthlutað.