Nýjast á Local Suðurnes

Jalalpoor sendur heim

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur sagt upp samningi við Philip Jalalpoor sem hóf tímabilið með karlaliðinu í körfuboltanum.

Phil þótti ekki hafa hentað liðinu nægilega vel en hann spilaði einn leik fyrir félagið í deildinni og þó nokkra á undirbúningstímabilinu.

Í tilkynningu þakkar körfuknattleiksdeildin Phil fyrir sitt framlag og óskar honum vel í sínum næstu verkefnum.