Nýjast á Local Suðurnes

Auglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar

Menningarráð Reykjanesbæjar auglýsir eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar. Annars vegar er um þjónustusamning að ræða og hins vegar verkefnastyrk.

Þjónustusamningar við menningarhópa:

Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2018 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.

Hér má finna eyðublað. 

Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna:

Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2018 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.

Hér má finna eyðublað. 

Umsóknum skal skilað á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða í ráðhúsið,Tjarnargötu 12 í síðasta lagi 5. febrúar n.k.