Nýjast á Local Suðurnes

Dópaðir á rúntinum með ung börn í bílnum

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur var með fimm ára gamlan son sinn með sér í bílnum. Fullorðinn farþegi í bílnum, sem einnig var grunaður um fíkniefnaneyslu, var með tveggja ára son sinn meðferðis. Löggregla tilkynnti barnaverndaryfirvöldum um atvikið.

Þá voru átta ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 107 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km. Ökumaðurinn hafði ekki náð 18 ára aldri og var barnaverndarnefnd því gert viðvart, auk viðurlaga við umferðarlagabroti af þessu tagi.