Nýjast á Local Suðurnes

Hreinsuðu um þrjú tonn af rusli á Pattersonsvæðinu

Sjálfboðaliðar á vegum Hagsmunafélags hunda á Suðurnesjum stóðu fyrir hreinsunarátaki á Pattersonsvæðinu á dögunum í samstarfi með Reykjanesbæ og Kadeco.

Alls var fargað um þremur tonnum af allskyns úrgangi, þar af nokkur hundruð kílóum af gleri sem hafði verið skilið eftir á svæðinu með tilheyrandi hættu á slysum.