Nýjast á Local Suðurnes

Umferð beint um Njarðvík eða Ásbrú vegna umferðarslyss

Lokað verður fyrir umferð um Reykjanesbraut við hringtorg á Fitjum með akstursstefnu til vesturs frá Fitjum að Grænásbrekku næstu klukkustundirnar vegna umferðaróhapps.

Tilkynning lögreglu:

Til þeirra sem eiga leið um Reykjanesbraut.
Reykjanesbrautin er lokuð umferð með akstursstefnu til vesturs frá Fitjum að Grænásbrekku. Gera má ráð fyrir því að vegkaflinn verði lokaður í nokkrar klukkustundir. Umferð er beint inn í Njarðvík eða Ásbrú.