Sprungur á Vatnsleysuströnd nánast fullar af rusli

Elísabet Ásta Eyþórsdóttir, nemi jarðfærði við Háskóla Íslands, greinir frá ótrúlegum sóðaskap í náttúrunni, til móts við Minni-Vatnsleysu, á Facebook-síðu sinni. En hún var við mælingar á Vatnsleysuströnd, ásamt samnemendum sínum, þegar þau gengu fram á sprungur sem höfðu nánast verið fylltar af rusli.
„Ég og bekkjarsystur mínar vorum að mæla sprungur á Vatnsleysuströnd í gær. Það var leiðinlegt að koma að þessari sprungu,“ skrifar Elísabet á Facebook og í samtali við DV bætir hún við að hópurinn hafi sérð drasl í fleiri sprungum en þó ekki svona mikið: „Við sáum helling af bjórdósum og smá drasl sem hefur fokið þangað að öllum líkindum.“