Nýjast á Local Suðurnes

Tæplega 700 milljóna króna fasteignir til sölu

Húseignirnar Valhallarbraut 763 og 764 á Ásbrú í Reykjanesbæ eru komnar á sölu. Ásett verð fyrir eignirnar eru 650 milljónir króna.

Í húsinu númer 763 sem er skráð undir gistiheimili eru alls 96 herbergi á þremur hæðum. 48 matshlutar, 16 á hverri hæð, auk sameignar. Hvert herbergi er skráð um 52 m² og deilir baðherbergi með öðru herbergi. Herbergin eru búin húsgögnum að hluta. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er flatarmál þeirrar eignar með sameign skráður  3.369,8 m². Húsið númer 764 er skráð pósthús. Um er að ræða sér timburhús á einni hæð skráð 146,4 m².

Stærð leigulóðar er tæplega 12.000 fermetrar.