Nýjast á Local Suðurnes

Alvarlegt ástand í grunnskólum – Starfsfólk farið í veikindafrí eða hætt störfum

Dæmi eru um kulnun í starfi hjá kennurum í Reykjanesbæ og eru afleiðingarnar þær að fólk er komið í veikindafrí eða er hætt að starfa í skólunum. Þetta kemur fram í bókun Skúla Sigurðssonar fulltrúa grunnskólakennara í fræðsluráði Reykjanesbæjar.

Í bókun Skúla segir að ein af ástæðum kulnunar í starfi sé úrræðaleysi í aðkallandi vandamálum.

„Það er sveitarstjórnar að vinna í því að bæta ástandið í skólunum og hafa úrræði fyrir þá sem þurfa en ekki  horfa framhjá vandamálinu og vona að það hverfi,“

Bókunin í heild sinni:

Við trúnaðarmenn á Suðurnesjum viljum vekja athygli á því ástandi sem ríkir í grunnskólum á svæðinu. Eftir að hafa verið á fundi og rætt málin þá er samróma ályktun okkar að óeðlilegt álag sé á kennurum og kemur það mikið niður á þeim. Margir kennarar eru að gefast upp á því álagi.

Nú í haust eru einhver dæmi um kulnun í starfi hjá kennurum þannig að fólk er komið í veikindafrí eða hreinlega er hætt að starfa í skólunum. Lítil úrræði á þeim málum sem koma upp í skólunum er stór þáttur í þessu ástandi. Það er sveitarstjórnar að vinna í því að bæta ástandið í skólunum og hafa úrræði fyrir þá sem þurfa en ekki horfa framhjá vandamálinu og vona að það hverfi bara. Til framtíðar hljótum við öll sem samfélag að græða á því ef tekið er rétt á málunum í upphafi þannig að vandinn verði ekki stærri