Nýjast á Local Suðurnes

Kærðu fjölda ökumanna fyrir hraðakstur

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært um 40 ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 141 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Tveir til viðbótar óku á 140 km hraða þar sem hámarkshraði er einnig 90 km.

Þá voru tíu ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og afskipti höfð af fáeinum sem óku sviptir ökuréttindum.