Nýjast á Local Suðurnes

Handtekinn vegna sprengjuhótunar

Einn aðili hefur verið hand­tekinn vegna sprengju­hótunar sem barst í ráð­hús Reykja­nes­bæjar í síðustu viku. Sam­kvæmt upp­lýsingum frá lög­reglunni á Suður­nesjum var aðilinn hand­tekinn við komu til landsins. Hótunin barst í almennan póst sveitarfélagsins og var á ensku.

„Það tókst mjög fljótt að rekja sprengju­hótunina og grunaður aðili var hand­tekinn í gær við komu til landsins,“ segir Gunnar Schram yfir­lög­reglu­þjónn hjá Suður­nesjum í svari til Frétta­blaðsins