Nýjast á Local Suðurnes

Mæðgur sóttar á Fagradalsfjall af björgunarsveit

Björgunarsveitin Þorbjörn var kölluð út að Fagradalsfjalli um klukkan 14 í dag, eftir að tilkynnt var um konu sem hafði fótbrotnað. Um klukkustund tók að koma konunni af fjallinu og í sjúkrabíl, segir á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar.

Hér má sjá mæðgur í fylgd með björgunarsveitarfólki niður af Fagradalsfjalli í dag. Móðirin lenti í því að fótbrotna ofarlega í fjallinu og liggur í börum í buggybílnum. Unga stúlkan fékk það verkefni að passa skó móður sinnar á meðan svo allir hefðu eitthvað hlutverk á leiðinni niður
Útkallið barst um klukkan 14 í dag og rúmlega klukkustund síðar var viðkomandi komin í sjúkrabíl